Kynning á kjarasamningi
Verkalýðsfélag Grindavíkur og Samtaka atvinnulífsins
frá 20. febrúar 2014
Grundvallaratriði samningsins:
Um er að ræða viðauka við samninginn sem kynntur var félagsmönnum í janúar, en var hafnað. Nýi kjarasamningurinn gildir frá 1. febrúar 2014 til 28. febrúar 2015. Samninginn í heild má finna á heimasíðu Verkalýðsfélag Grindavíkur , vlfgrv.is
Það sem kemur nú til viðbótar samningnum frá því í janúar er að orlofs- og desemberuppbætur fyrir fullt starfa hækka samtals um kr. 32.300 frá gildandi kjarasamningi. Þetta er varanleg hækkun.
- Orlofsuppbótin fer úr 28.700 krónum í 39.500
- Desemberuppbótin fer úr 52.100 krónum í 73.600
Eingreiðsla
Þar sem samningurinn gildir frá 1. febrúar verður kr. 14.600 eingreiðsla vegna janúarmánaðar miðað við fullt starf/starfshlutfall og að viðkomandi hafi verið í vinnu 1. febrúar.
Hvað þýðir þetta í raun?
- Launabreytingar frá 1. febrúar 2014:
- Kauptaxtar sem eru kr. 230.000 og lægri hækka sérstaklega og nemur hækkunin tæplega 5%. Dæmi: Launaflokkur 1, byrjunarlaun, hækkar um kr. 9.565 og launaflokkur 17, eftir sjö ár, hækkar um kr. 10.107
- Aðrir kauptaxtar og kjaratengdir liðir (Bónus, premía, akkorð o.fl.) hækka um 2,8%, þó að lágmarki um kr. 8.000 á mánuði fyrir dagvinnu miðað við fullt starf.
- Lágmarkstekjur fyrir fullt starf verða þó kr. 214.000 á mánuði fyrir starfsmenn 18 ára og eldri sem starfað hafa fjóra mánuði samfellt hjá sama fyrirtæki.
Sýnum ábyrga afstöðu og greiðum atkvæði!