Heim » Fréttir » Fréttir » TAKA ÞÁTT Í KÖNNUN

TAKA ÞÁTT Í KÖNNUN

skráð í Fréttir 0

Kæru félagar

Nú þurfum við hjá Verkalýðsfélag Grindavíkur á ykkar hjálp að halda. Við viljum biðja ykkur að taka þátt í könnun um stöðu ykkar. Það tekur stuttan tíma og allir sem vilja komast í pott og geta unnið 40.000 króna gjafakort.

Könnunin er á vegum Vörðu – Rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins og er nú lögð fyrir þriðja árið í röð. Könnunin er mikilvægur liður í upplýsingaöflun um stöðuna á vinnumarkaði, sér í lagi varðandi fjárhagsstöðu og heilsu. Niðurstöður hennar munu hjálpa okkur við að greina stöðu launafólks á Íslandi og berjast fyrir betri lífsskilyrðum. 

Það tekur aðeins um 15 mínútur að svara könnuninni og ekki er hægt að rekja svör til einstaklinga. Spurt er um fjárhagsstöðu, líðan, heilsufar, kulnun og réttindabrot á vinnumarkaði. 

Könnunina finnið þið hér

Framkvæmd könnunarinnar er alfarið í höndum Vörðu, sem sér um hönnun spurninga, uppsetningu, framkvæmd og úrvinnslu á niðurstöðum. 

  • Könnunin verður opin í tvær vikur og hægt er að svara henni í síma, spjaldtölvu eða tölvu. 
  • Könnunin er á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku. 
  • Þrír þátttakendur vinna 40.000 kr. gjafakort fyrir þátttökuna. 
  • Könnunin opnar fimmtudaginn 9. febrúar og verður lokað miðvikudaginn 22. febrúar. 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *