Heim » Fréttir » Fréttir » Ályktunvegna miðlunartillögu Ríkissáttasemjara

Ályktunvegna miðlunartillögu Ríkissáttasemjara

skráð í Fréttir 0

Stjórn Verkalýðsfélags Grindavíkur mótmælir harðlega miðlunartilllögu ríkissáttasemjara í kjaradeilu Eflingar við Samtök atvinnulífsins. 

Ljóst er að með þessum inngripum ríkissáttasemjara á þessum tíma í deilunni hefur Ríkissáttasemjari misst trúverðuleika og traust gagnvart stéttarfélögum og launafólki í landinu. 

Stjórn Verkalýðsfélags Grindavíkur hvetur Aðalsteinn Leifsson Ríkissáttasemjara til að draga tillöguna til baka og stíga til hliðar þar sem traust og trúverðuleiki er það mikilvægasta í hans starfi en því miður er það brotið á milli hans, stéttarfélaganna og launafólks í landinu. 

Það að miðlunartilaga Ríkissáttasemjara líti nákvæmlega út eins og síðasta tilboð Samtaka Atvinnulífins til Eflingar gefur það til kynna að Ríkissáttasemjari sé strengjabrúða Samtaka Atvinnulífsins, við það getur stjórn Verkalýðsfélags Grindavíkur ekki sætt sig. Hans starf er að miðla málum og verkstýra, ekki að stíga inn í deiluna og taka einungis upp málflutning Samtaka atvinnulífsins. 


Fyrir hönd Verkalýðsfélags Grindavíkur

Hörður Guðbrandsson formaður S.892-8603

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *