Heim » Fréttir » Fréttir » Nýr samningur samþykktur hjá V.L.F.G. og öllum félögum SGS

Nýr samningur samþykktur hjá V.L.F.G. og öllum félögum SGS

Niðurstöður atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins á hinum almenna vinnumarkaði liggja nú fyrir og var samningurinn samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta. Starfsgreinasambandið hélt utan um sameiginlega rafræna atkvæðagreiðslu meðal 18 félaga um nýjan samning, en AFL Starfsgreinafélag sá sjálft um sína atkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðslan stóð yfir á tímabilinu 12. til 23. apríl. Í heildina var kjörsókn 12,78%, já sögðu 80,06% en nei sögðu 17,33%. 2,61% tóku ekki afstöðu. Á kjörskrá voru 36.835 manns.

Á myndinni hér að neðan má sjá niðurstöður kosninganna hjá Verkalýðsfélag Grindavíkur. Á kjörskrá voru 800 félagsmenn en 132 greiddu atkvæði eða 16,5%. Af þeim 132 sem tóku þátt í kosningunum voru 118 sem greiddu atkvæði með samningnum, 11 sögðu nei en 3 tóku ekki afstöðu.

Niðurstöðurnar voru afgerandi í öllum félögunum nema einu, en í 17 af 19 félögum var samningurinn samþykktur með yfir 70% atkvæða. Samningurinn á hinum almenna vinnumarkaði, sem undirritaðir voru 3. apríl síðastliðinn, telst því samþykktur hjá eftirfarandi félögum: AFLi Starfsgreinafélagi, Öldunni stéttarfélagi, Bárunni stéttarfélagi, Drífanda stéttarfélagi, Eflingu stéttarfélagi, Einingu-Iðju, Framsýn stéttarfélagi, Stéttarfélagi Vesturlands, Stéttarfélaginu Samstöðu, Verkalýðsfélagi Akraness, Verkalýðsfélagi Grindavíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Sandgerðis, Verkalýðsfélagi Snæfellinga, Verkalýðsfélagi Suðurlands, Verkalýðsfélagi Vestfirðinga, Verkalýðsfélagi Þórshafnar, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis og Verkalýðsfélaginu Hlíf.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *