Heim » Fréttir » Fréttir » Reglur um skil á læknisvottorði

Reglur um skil á læknisvottorði

skráð í Fréttir 0

Explore Grindavík

Athygli er vakin á breyttum reglum hjá Sjúkrasjóði Verkalýðsfélags Grindavíkur um skil á læknisvottorðum. Með þessu er verið að betrumbæta þær reglur sem þegar hafa verið í gildi í mörg ár.

  1. Umsókn um sjúkradagpeninga skjal fylgja ljósrit af sjúkradagpeningavottorði frá lækni, upprunnið í tölvukerfum heilsugæslunnar og spítalanna.
  2. Fyrsta vottorð þarf að vera íslenskt sjúkradagpeningavottorð. Framhaldsvottorð (vottorð vegna endurnýjunar/framlengingar) mega vera af erlendum toga en þurfa að vera ítarleg og innihalda sambærilegar upplýsingar og sjúkradagpeningavottorð. Ef þau eru á erlendu tungumáli þarf að fylgja þýðing yfir á íslensku eða ensku gerð af löggiltum skjalaþýðanda.
  3. Heimilt er að skila erlendu fyrsta vottorði ef félagsmaður veikist skyndilega í fríi erlendis. Félagsmaður getur þurft að færa sönnur fyrir því að um fyrirfram ákveðið frí erlendis hafi verið að ræða.
  4. Stjórn sjúkrasjóðs Verkalýðsfélags Grindavíkur þarf að samþykkja öll erlend læknisvottorð sem móttekin eru undir skilyrðum í lið 2) og 3). Úrskurður stjórnar er endanlegur. 

Þessar reglur taka gildi frá og með 1. Janúar  2024.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *