Vegna smitvarna, vill félagið koma eftirfarandi til skila
Verkalýðsfélag Grindvíkur vill fá það á hreint að félagsmaður sem leigt hafi húsnæði VLFGRV fari ekki eða nýti húsið ef það er jákvætt greint vegna covit-19 eða er í sóttkví. Þetta þarf að vera alveg klárt. Ef upp koma einhver svona tilfelli þarf að sótthreinsa húsin eftir veru þeirra þar. Eins og staðan er núna þá höfum við ekki tök á því að sinna því og bið ég ykkur um að sýna þessu skilning. Ef hins vegar kemur í ljós að einstaklingar sem hafa verið í sóttkví eða einangrun hafa verið í húsunum þá verður að tilkynna það strax.
Félagið áskilur sér allan rétt vegna kostnaðarhlutdeildar ef upp koma slík tilvik , munið húsið er á ábyrgð leigutaka / félagsmanns.
Kveðja stjórn orlofsnefndar Verkalýðsfélags Grindavíkur
Leave a Reply