Heim » Fréttir » Fréttir » Ályktun stjórnar og trúnaðarráðs VLFG

Ályktun stjórnar og trúnaðarráðs VLFG


Grindavík 21. febrúar 2019

Ályktun stjórn og trúnaðarráðs VLFG

Verkföll eru alfarið á ábyrgð atvinnurekanda

Stjórn og trúnaðarráð VLFG krefst þess að Samtök atvinnulífsins komi með raunhæft tilboð til launahækkana. Ljóst er að verkafólk lifir ekki af launum sínum og hefur sagt stopp.

Ef til verkfalla kemur er það alfarið á ábyrgð atvinnurekanda. Sú krafa að verkafólki geti lifað mannsæmandi lífi af launum sínum er ekki bara eðlileg krafa heldur líka sanngjörn.

Samtök atvinnulífsins hafa haft 52 daga í dag síðan samningar félagsins losnuðu til þess að koma með raunhæft tilboð að samningaborðinu, það hafa þau ekki gert.

Ef til verkfalla kemur er ekki hægt að benda á verkafólk, einu sökudólgarnir eru atvinnurekendur sem bjóða launahækkanir sem viðheldur fátækt hjá verkafólki. Verkafólk í Grindavík samþykkir ekki lengur að lifa í fátækt.        

Nánari upplýsingar gefur Hörður Guðbrandsson í síma 892-8603

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *