Heim » Fréttir » Fréttir » Verkalýðsfélag Grindavíkur á ferðalagi með SGS á norðurlöndunum.

Verkalýðsfélag Grindavíkur á ferðalagi með SGS á norðurlöndunum.

SGS Á FERÐ UM NORÐURLÖND

Fulltrúar aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins hafa verið á ferð um Noreg og Danmörku til að kynna sér kjarasamningsgerð og uppbyggingu verkalýðshreyfingarinnar þar í löndum. SGS hittu Fällesforbundet i Noregi, sem eru systursamtök SGS og stærstu landssamtök innan norska ASÍ (LO). Þá var haldin kynning á framkvæmd verkfalls starfsfólks í hótel- og veitingagreinum í fyrrasumar sem SGS studdi með ráðum og dáð, auk þess sem farið var yfir verklag  við kjarasamningagerð. Í Danmörku hitti sendinefndin félaga okkar í 3F sem er stærsta stéttarfélag Danmörku. Þar þáðu Íslendingarnir fræðslu um kjarasamningagerð, vinnulag, laun og önnur réttindi starfsfólks á danska vinnumarkaðinu. Þá var farið sérstaklega yfir muninn á Norðurlöndunum varðandi kaup og kjör. Ljóst er að ferðin hefur verið árangursrík og fulltrúar aðildarfélaga SGS koma betur undirbúin heim undir umræður um framtíðarskipan kjarasamningsmála á Íslandi.

IMG_1826 IMG_1829 IMG_1830 IMG_1831 IMG_1832 IMG_1835   IMG_1838  IMG_1840 IMG_1854

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *