Heim » Fréttir » Fréttir » Áskorun um löggildingu félagsliða -mars 2016-

Áskorun um löggildingu félagsliða -mars 2016-

Áskorun um löggildingu félagsliða -mars 2016- Stétt félagsliða telur nú hátt í eitt þúsund manns en tólf ár eru síðan námið stóð fyrst til boða. Félagsliðar eru sérmenntaðir til að veita þjónustu í formi aðstoðar og umönnunar einstaklinga á öllum aldri sem vegna félagslegra aðstæðna, líkamlegrar eða andlegra hömlunar eiga erfitt um vik að sjá um sig sjálfir. Félagsliðar hafa aðallega starfað með öldruðum og fötluðum, bæði á stofnunum og sem aðstoð í daglegu lífi. Félagsliðar hafa barist fyrir því að verða löggilt heilbrigðisstétt um árabil en lítið hefur gengið. Löggilding félagsliða er ekki bara mikilvæg fyrir framgang stéttarinnar heldur ekki síst fyrir gæði þjónustu við þann vaxandi hóp sem þarf á aðstoð að halda.  Félagsliðar eru vaxandi stétt sem mætir vaxandi þörf í samfélaginu fyrir sérþekkinguna sem námið veitir. Sífellt meiri áhersla er á að sinna fólki heima hjá sér og veita aðstoð við allar dagslegar athafnir.  Félagsliðar eru sérmenntaðir í að auka lífsgæði skjólstæðinga bæði félagslega og andlega og við daglegar athafnir.  Í greiningu sem Starfsgreinasamband Íslands vann á fræðsluþörf fyrir aðstoðarfólk fatlaðs fólks kemur fram að nám félagsliða uppfyllir þær gæðakröfur sem gerðar eru á Norðurlöndunum um menntun fyrir aðstoðarfólk.  Vegna skorts á löggildingu er ekki tekið tillit til félagsliða í mönnunarmódelum stofnana og því er síður auglýst eftir fólki með félagsliðamenntun. Stofnanir verða því af mikilvægri þekkingu starfsfólks.  Til að viðhalda stéttinni og efla hana enn frekar til að mæta framtíðakröfum er nauðsynlegt að sýna stéttinni tilhlýðiðlega virðingu og er löggilding stærsta skrefið í þá átt.  Það er vanvirðing við starf félagsliða að stétt þeirra skuli ekki vera talin með fjölmörgum öðrum fagstéttum sem löggilt starfsgrein í lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Við skorum á heilbrigðisráðherra að löggilda stétt félagsliða hratt og örugglega! Félag íslenskra félagsliða Starfsgreinasamband Íslands SFR – stéttarfélag í almannaþjónustu Stéttarfélag Vesturlands Framsýn stéttarfélag Verkalýðs- og sjóm.f. Keflavíkur og nágrennis Eining – Iðja Efling stéttarfélag Báran stéttarfélag Verkalýðsfélagið Hlíf Verkalýðsfélag Þórshafnar Verkalýðsfélag Snæfellinga Verkalýðsfélag Suðurlands Verkalýðsfélag Vestfirðinga Drífandi stéttarfélag Aldan stéttarfélag Verkalýðs- og sjóm.f. Sandgerðis Verkalýðs- og sjóm.f. Bolungarvíkur Stéttarfélagið Samstaða AFL starfsgreinafélag Verkalýðsfélag Akraness Verkalýsðfélag Grindavíkur

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *