Heim » Fréttir » Fréttir » Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2022

Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2022

skráð í Fréttir 0

Orlofsuppbót/ persónuuppbót 2022

Verkalýðsfélag Grindavíkur  vill minna félagsmenn á rétt sinn á að fá greidda orlofsuppbót/persónuuppbót, en það er föst fjárhæð sem atvinnurekendum er skylt að greiða starfsfólki sínu í maí/júní ár hvert. Uppbótin miðast við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, inniheldur orlof og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.

  • Á almenna markaðinum er orlofsuppbótin kr. 53.000 miðað við fullt starf og greiðist 1. júní ár hvert.
  • Hjá ríkinu er orlofsuppbótin kr. 53.000 miðað við fullt starf og greiðist 1 . júní ár hvert.
  • Hjá sveitarfélögum er persónuuppbótin kr. 53.000 miðað við fullt starf og greiðist 1. maí ár hvert.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *