Heim » Fréttir » Fréttir » Skrifstofuskóli á ensku, pólsku og íslensku.

Skrifstofuskóli á ensku, pólsku og íslensku.

skráð í Fréttir 0

NTV skólinn, í samstarfi við starfsmenntasjóði, býður félagsmönnum ykkar Skrifstofuskóla NTV í fjarnámi á ensku, pólsku og íslensku

Námskeiðin verða niðurgreidd um 90% með einstaklingsstyrkjum, sem eru að hámarki 130.000,- kr., af starfsmenntasjóðunum Landsmennt, Sjómennt, Sveitamennt og Ríkismennt.  

Einnig verður námskeiðið „Grunnnám í bókhaldi boðið samhliða. 

Óskað er eftir samstarfi við ykkur um markaðssetningu á námskeiðunum. 

Námskeiðunum verður skipt í tvo hluta, „Skrifstofuskóli NTV – Grunnur“, 9 vikna námskeið sem verður í boði á haustönn og „Skrifstofuskóli NTV – Framhald“, 6 vikna námskeið sem haldið verður í byrjun næsta árs. Aðilar sem taka grunnnámskeiðið, sem er með áherslu á tölvufærni og almenna skrifstofufærni, hafa val um að skrá sig á framhaldsnámskeið eftir áramótin, sem verður með áherslu á bókfærslu og reikningshald. 

NTV býður námskeiðin á sérstöku tilboðsverði og stefnt er að því að þau hefjist 18. október nk. 

Námskeið Tungumál Vikur Tilboðsverð Byrjar Lýkur  
Skrifstofuskóli NTV – Grunnur Íslenska 149.000 18.10.21 17.12.21  
Skrifstofuskóli NTV – Grunnur Enska 149.000 18.10.21 17.12.21  
Skrifstofuskóli NTV – Grunnur Pólska 149.000 18.10.21 17.12.21  
Bókhald grunnur Íslenska 149.000 18.10.21 03.12.21  

Enska: http://www.ntv.is/is/namskeid/view/office-and-computer-skills-online-course

Pólska: http://www.ntv.is/is/namskeid/view/szko-322-a-biurowa-ntv-kurs-online

Íslenska: http://www.ntv.is/is/namskeid/view/skrifstofuskoli-grunnur-fjarnam

Grunnur í bókhaldi: http://www.ntv.is/is/bokhalds_og_taekninam/grunnnam-i-bokhaldi-og-excel

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *