Fræðslusjóðir Landsmenntar, Ríkismenntar, Sveitamenntar og Sjómenntar hafa gert samning við Dale Carnegie um 100% niðurgreiðslu á námskeiðinu Dale á milli starfa. Þetta nýja námskeið er fyrir alla sem eru á milli starfa eða í leit að atvinnutækifærum og sýna niðurstöður gæðamats mikla ánægju með námskeiðið. Sjá hér að neðan.
Í viðhengi eru helstu upplýsingar um námskeiðið sem er í boði LIVE ONLINE fyrir félagsmenn, einu sinni í viku í 6 skipti og svo eitt eftirfylgniskipti.
Auglýsingu um samstarfið er einnig að finna á heimasíðu Landsmenntar þar sem þennan texta er að finna:
Dale á milli starfa er LIVE ONLINE námskeið sem er að fullu niðurgreitt fyrir félagsmenn Landsmenntar, Ríkismenntar, Sveitamenntar og Sjómenntar. Tveir alþjóðlega vottaðir Dale Carnegie þjálfarar leiða þetta 6 skipta námskeið sem er einu sinni í viku í tvo og hálfan tíma í senn. Webex þjálfunarumhverfið býður upp á þátttöku í rauntíma þar sem verkefnavinna, coaching og umræður fara fram á líflegan máta. Sérstakur tæknilegur aðstoðarmaður sér um að lágmarka tæknitruflanir og að enginn lendi í vandræðum með tengingar.
Nánari upplýsingar og skráning er hér.
Reikningur er sendur beint á skrifstofu fræðslusjóðanna.
NPS skorið er 92%.
Ath. Kvarðinn er frá mínus 100 til plús 100.
Leave a Reply