Stjórnir sjóðanna Landsmenntar, Ríkismenntar og Sveitamenntar sem Verkalýðsfélag Grindavíkur er aðili að samþykktu nú í desember að hækka hámark einstaklingsstyrkja úr 100 þúsund í 130 þúsund.
Samþykkt er að hækka um næstu áramót hámark einstaklingsstyrkja í kr. 130.000.- þar með hækkar einnig hámark á uppsöfnuðum rétti til styrks í kr. 390.000.
Hækkunin tekur gildir frá 1.janúar 2020 og gildir gagnvart því námi sem hefst frá og með þeim þeim tíma.
Leave a Reply