Stefnt er að undirritun kjarasamninga Starfsgreinasambandsins við Samtök atvinnulífsins klukkan tvö í dag samkvæmt upplýsingum frá embætti Ríkissáttasemjara. Fulltrúar SGS mættu til fundar hjá embættinu klukkan 8:30 í morgun og er unnið að því að leggja lokahönd á samningana.